Auglýsingar
Auglýsingakerfið gerir kleift að halda utan um auglýsingar á heimasíðum. Mjög auðvelt er að halda utan um birtingu auglýsinga á ákveðnum plássum á heimasíðunni. Kerfið heldur utan um hversu oft auglýsingarnar birtast og hve oft er smellt á þær. Hægt er að stilla auglýsingar þannig að þær eru virkar aðeins ákveðið tímabil. Hver auglýsing er tengd viðskiptavini.
Kerfið byggir á auglýsingagrúppum og hver auglýsingagrúppa táknar í raun auglýsingapláss. Hægt er að velja um hvort virkar auglýsingar birtist tilviljunarkennt í þessu auglýsingaplássi eða bara ein föst.
Hægt er að nota helstu myndskrár fyrir Internetið sem auglýsingar sem og Flash-skrár.
Auðvelt er að tengja auglýsingagrúppur (pláss) við hverja heimasíðu. Það er gert í gegnum stillingar á hverri síðu fyrir sig.